Dæmdar 55 milljónir í bætur vegna slyss í Laugardalslaug Magnús Már Guðmundsson skrifar 10. júní 2010 16:55 Maðurinn lenti með höfuðið á botni laugarinnar, hlaut af mænuskaða og lamaðist fyrir lífstíð. Við það hlaut hann 100% örorku. Mynd/Arnþór Birkisson
Hæstiréttur hefur dæmt Vátryggingafélag Íslands til að greiða ungum pólskum manni tæpar 50 milljónir króna í bætur auk vaxta vegna slyss sem hann varð fyrir í Laugardalslaug árið 2007. Með vísan til skaðabótalaga komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að líta bæri fram hjá því að maðurinn væri meðábyrgur að tjóni sínu og dæmdi honum því fullar bætur vegna slysins. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt manninum rúmar 33 milljónir í bætur. Maðurinn lenti með höfuðið á botni laugarinnar, hlaut af mænuskaða og lamaðist fyrir lífstíð. Við það hlaut hann 100% örorku. Maðurinn taldi að varúðarmerkingar við sundlaugina hefðu verið ófullnægjandi á það féllst dómurinn. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að merkingar um dýpi og um að dýfingar væru bannaðar hefðu ekki verið greinilegar og því væri ekki fullnægt fyrirmælum reglugerðar um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Í matsgerð tveggja lækna, sem málsaðilar öfluðu sameiginlega, kemur fram að afleiðingar mænuskaða mannsins séu ,,mjög alvarlegar, það er lömun á þvagblöðru og þarf að tappa þvagi af blöðru reglulega með þvaglegg. Hægðalosun fer fram með aðstoð lyfja og gerist ekki á annan hátt. Engin hreyfigeta er í ganglimum og verulega skert hreyfigeta í efri útlimum.“ Þá segir að maðurinn sé ekki sjálfbjarga að koma sér í og úr hjólastól. Að öllum líkindum verður hann upp á aðra kominn um alla ævi hvað þetta varðar vegna skertrar starfsemi í handleggjum og höndum. Maðurinn hefur notið hjálpar bróður síns og vinar þeirra, en óvíst er hve lengi það getur orðið, segir í dómnum.
Mest lesið Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Aron Can heill á húfi Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ Erlent ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Innlent Fleiri fréttir Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Launaði neitun á gistingu með löðrungi Óvinsældir eftir þinglok og meint leyndarmál frönsku forsetahjónanna Innan við þriðjungur andvígur olíuleit Ætlar fyrir Mannréttindadómstólinn og segir fréttaflutning villandi Sjá meira