Innlent

Golfklúbbur Reykjavíkur fær ekki styrkinn

Helga Arnardóttir skrifar
Golfklúbbur Reykjavíkur fær ekki 230 milljóna króna styrkinn frá Reykjavíkurborg eins og ákveðið var fyrr en öðrum framkvæmdum er lokið segir borgarstjóri. Stjórn klúbbsins hefði átt að greina borginni frá því að styrkur borgarinnar frá síðasta ári hafi verið notaður til að niðurgreiða eldri framkvæmdalán.

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar kannar nú málefni golfklúbbs Reykjavíkur en greint hefur verið frá því að hann hefði síðustu þrjú ár þegið 210 milljónir króna frá borginni til ákveðinna framkvæmda en mögulega notað hátt í helming fjárins til að lækka yfirdrátt og aðrar skuldir. Stjórn Golfklúbbsins fullyrðir að enginn styrkur frá Reykjavíkurborg hafi farið í rekstur klúbbsins, hvorki til niðurgreiðslu kaupleigusamninga né yfirdráttar. Klúbburinn hafi fengið 80 milljónir í framkvæmdastyrk frá borginni í febrúar í fyrra. Stjórn hans hætti hins vegar við framkvæmdir vegna efnahagsástandsins og ákvað að greiða niður eldri framkvæmdalán.

Samningurinn gerir ráð fyrir því að þeir framkvæmi ákveðna hluti, ef þeir ætla að gera breytingar á því og ekki láta af þeim verða þá hefðu þeir átt að upplýsa borgina um það, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri.

230 milljóna styrkur sem borgarstjórn ákvað í vikunni að veita klúbbnum til frekari framkvæmda verður því ekki greiddur út fyrr en eldri framkvæmdum verður lokið.

En þarf að herða eftirlitsreglur með úthlutuðum styrkjum Reykjavíkurborgar? „Reglurnar eru skýrar en ég hef engu að síður óskað eftir því að reglurnar okkar verði yfirfarnar og ferlarnir líka. Því auðvitað er það þannig að svona á ekki að koma upp, við eigum að geta treyst því að samningar standi," segir Hanna Birna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×