Bauð Önnu bensín á bílinn eða barnapíu 13. mars 2010 07:00 Magnús Scheving „
Ég fékk hringingu frá honum Magnúsi Scheving, takk," segir Anna Vallý Baldursdóttir, sem hætti við að fara á fyrirhugaða Latabæjarhátíð vegna þess að borga þarf fullt aðgöngumiðaverð fyrir alla, líka níu mánaða börn. Anna Vallý hugðist fara með níu mánaða dóttur sína í fanginu á Latabæjarhátíðina til þess að eldri dóttir hennar, sem er fjögurra ára, kæmist á sýninguna. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær sagðist Anna eiga erfitt með að fá pössun fyrir þá yngri því foreldrar hennar búa á Akranesi. Að sögn Önnu hringdi Magnús Scheving, stofnandi Latabæjar og Íþróttaálfurinn sjálfur, í hana eftir að Fréttablaðið sagði frá máli hennar í gær. Hún segir Magnús hafi sagst lítið geta gert varðandi aðgöngumiðana þar sem það væri ekki hans fyrirtæki sem skipulegði Latabæjarhátíðina. „Magnús sagðist skilja mig en þótt hann myndi alveg vilja hleypa mér ókeypis inn með alla fjölskylduna þá hefði hann engan rétt til þess. Hins vegar bauðst hann til borga bensín á bílinn til að koma barninu upp á Akranes í pössun eða þá að borga barnapíu því hann vildi endilega að ég kæmi með þessa fjögurra ára til sín á sýninguna. Svo bauð hann mér að koma með báðar stelpurnar í heimsókn í Latabæjarstúdíóið því þar væru ekki eins mikil læti og á sýningunni," segir Anna sem er hikandi við að þiggja boð Magnúsar. „Hann sagði að það yrði gaman fyrir þessa fjögurra ára að koma en af því að ég fór svona langt með málið þá situr það aðeins í mér svo ég er ekki viss. En ég þakkaði honum æðislega vel fyrir og sagði að hann væri yndislegur að bjóða mér þetta." Hjá Latabæ vildu menn ekki tjá sig um þetta mál í gær. gar@frettabladid.is
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Fleiri fréttir Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sjá meira