Heilbrigðisstarfsfólki finnst hnýsni að spyrja um ofbeldi Erla Hlynsdóttir skrifar 24. september 2010 09:04 Á salerni mæðraverndar eru miðar þar sem konum er leiðbeint, á íslensku og pólsku, hvernig þær geta haft samband
Dæmi eru um að heilbrigðisstarfsfólk upplifi það sem hnýsni ef það spyr konu sem til þess leitar hvort hún hafi verið beitt ofbeldi. Heilbrigðisstofnanir leita ekki með skipulegum hætti að konum sem búa við ofbeldi og er vandamálið afar falið. Innan heilbrigðiskerfisins hefur þó safnast upp þekking á því hvaða merkjum ber að veita sérstaka eftirtekt, svo sem ef kona kemur alltaf í viðtöl með maka, ef hann svarar spurningum fyrir hana og hún fær varla að fara ein á salernið. „Það er kannski bara maður sjálfur sem að er kannski þannig að maður telur sig vera að hnýsast of mikið," segir viðmælandi í rannsókn um hvernig heilbrigðisþjónustan bregst við ofbeldi gegn konum. Erlendar rannsóknir sýna að starfsfólk þar upplifir stöðuna á svipana hátt. Dr. Ingólfur V. Gíslason vann rannsóknina og var gerð hennar hluti af af aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn ofbeldi karla gegn konum. Ef grunur leikur á að kona sé beitt ofbeldi af maka eða sambýlismanni er reynt að koma á fundi þar sem konan þarf að mæta ein. Þessi leið er gjarnan farin þegar kemur að mæðra- og ungbarnavernd. Þegar um erlenda konur er að ræða eru gerðar ráðstafanir til að fá túlk sem ekki er hluti af fjölskyldunni. Í mæðravernd á Landspítalanum er aldrei spurt um ofbeldi við fyrstu komu en ákveðnir áhættuhópar eru spurðir þegar traust hefur myndast, eftir þriðju eða fjórðu komu. Þá eru allir fíklar spurðir, konur sem eiga við geðræn vandamál að stríða og konur sem mæta alltaf með maka sem virðist reyna að koma í veg fyrir að þær séu einar með heilbrigðisstarfsmanni. Í þessu sambandi hefur í mæðraverndinni verið gripið til þess ráðs að setja miða á íslensku og pólsku á kvennasalernið þar sem konum er bent á að þær geta hringt ef það er eitthvað sem þær vilja ræða.
Tengdar fréttir Skortur á skimun fyrir ofbeldi gegn konum Hvergi í almenna heilbrigðiskerfinu eru spurningar um reynslu af ofbeldi hluti af almennum upplýsingum um skjólstæðinga. Þegar kemur að ákveðnum áhættuhópum, fyrst og fremst fíklum, þá er hins vegar spurt með reglubundnum hætti. Árvekni heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist gagnvart öðrum þekktum áhættuhópum svo sem konum af erlendum uppruna. 23. september 2010 10:14 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira
Skortur á skimun fyrir ofbeldi gegn konum Hvergi í almenna heilbrigðiskerfinu eru spurningar um reynslu af ofbeldi hluti af almennum upplýsingum um skjólstæðinga. Þegar kemur að ákveðnum áhættuhópum, fyrst og fremst fíklum, þá er hins vegar spurt með reglubundnum hætti. Árvekni heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist gagnvart öðrum þekktum áhættuhópum svo sem konum af erlendum uppruna. 23. september 2010 10:14