Innlent

Danir spá Degi Kára sigri

Leikararnir Paul Dano og Brian Cox með Degi Kára á tökustað í New York.
Leikararnir Paul Dano og Brian Cox með Degi Kára á tökustað í New York.

Dagur Kári fær frábæra umsögn í Politiken. Því er spáð að hann hljóti kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs.

Danska blaðið Politiken spáir því að kvikmynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart, muni hreppa kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs sem afhent verða þann 20. október. Til mikils er að vinna því aðalverðlaunin eru 350 þúsund krónur danskar eða rúmar sjö milljónir íslenskra. Fimm myndir frá öllum Norðurlöndunum koma til greina en Danir hafa verið sigursælastir frá árinu 2005 þegar þessi afhending varð árleg, hafa hlotið verðlaunin í þrígang. Fyrstur til að hljóta þau var hins hins vegar Aki Karuismáki fyrir mynd sína Maður án fortíðar.

Það er Kim Skotte, kvikmyndaritstjóri Politiken, sem spáir því að Dagur Kári muni fara heim með seðlana og viðurkenninguna. Hann gefur myndinni jafnframt fimm hjörtu af sex og segir að ef Jim Jarmusch hefði fengið að leikstýra einum þætti af Staupasteini hefði stemningin eflaust verið svipuð og sú sem svífur yfir vötnum í The Good Heart en hún verður frumsýnd í desember í Danmörku. Þá hrósar Skotte jafnframt Degi fyrir það afrek að hafa gert þrjár myndir á þremur mismunandi tungumálum: Nói Albínói var á íslensku, Voksne mennesker á dönsku og The Good Heart er öll leikin á ensku.

Skotte segir að Dagur eigi þó ekkert sigurinn vísan. Submarino eftir Thomas Vinterberg sé sterk og þá megi ekki gleyma finnsku heimildarmyndinni Miesten Vuoro eða Steam of Life eftir hinn 33 ára gamla Mika Hotakainen. „Ég er reiðubúinn að veðja sparifénu á að fámennasta landið á Norðurlöndunum fari með sigur af hólmi en set bæði Danmörku og Finnland til vara," skrifar Skotte, sem hefur þá augljóslega ekki mikla trú á Noregi og Svíþjóð.

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×