Innlent

Ungu fólki utan skóla líður verr en skólafólki

Ungt fólk sem er ekki í skóla líður verr en jafnöldrum þeirra sem eru í námi. Það er líklegra til að hafa brotna sjálfsmynd, neyta áfengis og ólöglegra vímuefna.

Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknarinnar Ungt fólk utan skóla sem kynntar voru í Háskólanum í Reykjavík í dag. Rannsóknin beinist að högum og líðan aldurshópsins 16 til 20 ára sem ekki stundar nám við framhaldsskóla á Íslandi.

Það var samdóma álit fundarmanna að koma þurfi í veg fyrir að þessi hópur fari útaf sporinu. Á fundinum kom meðal annars fram að í kreppunni í Finnlandi sjái fólk mest eftir því að hafa ekki hlúð betur að þessum hópi. Menntamálaráðherra segir að yfirvöld hér séu meðvituð um það.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×