Innlent

Tap 38 milljarðar á sjóðum Landsvaka

Veiking krónu Eignir Landsbankans jukust um 100 milljarða frá 7. október 2008 til ársloka. Ástæðan er einkum veiking krónunnar.Fréttablaðið/Pjetur
Veiking krónu Eignir Landsbankans jukust um 100 milljarða frá 7. október 2008 til ársloka. Ástæðan er einkum veiking krónunnar.Fréttablaðið/Pjetur

Landsbanki Íslands tapaði alls 38,2 milljörðum króna á markaðsskuldabréfum sem bankinn keypti af peningamarkaðssjóðum Landsvaka í október 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum um afkomuna síðustu mánuði ársins 2008.

Afkoma bankans eftir skatta á tímabilinu 7. október til 31. desember 2008 var neikvæð um 6,9 milljarða króna. Tapið skýrist fyrst og fremst af miklu tapi af skuldabréfum frá Landsvaka. Hreinn gengishagnaður af gjaldeyriseign bankans á tímabilinu var 32,6 milljarðar króna.

Heildareignir bankans voru 1.037 milljarðar króna í lok ársins 2008 og höfðu hækkað um rúma 100 milljarða frá 7. október. Eigið fé bankans var 143 milljarðar og eiginfjárhlutfall var 13 prósent.

Útlán til viðskiptavina námu 705 milljörðum króna. Innlán viðskiptavina námu 431 milljarði. Þar af voru verðtryggð innlán um 93 milljarðar króna, segir í tilkynningu Landsbankans.

Þar segir að stofnefnahagur bankans í árslok 2008 sýni trausta eiginfjárstöðu. Eiginfjárhlutfallið hafi verið þrettán prósent en hafi mátt vera átta prósent.- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×