Endurgreiði ferð sem aflýst var í eldgosinu gar@frettabladid.is skrifar 31. ágúst 2010 05:30 Aflýsa þurfti flugi Expressferða til Berlínar hinn 16. apríl því flugvöllurinn var lokaður vegna gossins í Eyjafjallajökli.
Ferðalangur sem keypti pakkaferð til Berlínar í apríl í vor á að fá alla ferðina endurgreidda en ekki aðeins flugið eins og Expressferðir vildu. Þetta er niðurstaða Neytendastofu. Lilja Hilmarsdóttir, rekstrarstjóri hjá Expressferðum, sem er í eigu Iceland Express, segir ekki tímabært að tjá sig um niðurstöðu Neytendastofu. Farið verði yfir málið með lögfræðingum í dag. Umrædd ferð átti að vera til Berlínar 16. apríl. Þar var ætlunin að gista á hóteli í þrjár nætur. Lilja segir að allt fram á síðustu stundu hafi verið vonast til að hægt yrði að lenda í Berlín. Reyndin hafi þó orðið sú að lokað var fyrir flugumferð í Berlín og úti um allt í Evrópu þennan dag. Expressferðir buðu farþegunum að fá flughlutann endurgreiddan eða að fá sams konar ferð og greiða 25 þúsund krónur til viðbótar. Einn farþeginn sætti sig við hvorugan kostinn og leitaði til Neytendasamtakanna sem kærðu málið til Neytendastofu. Að sögn Lilju kostaði umrædd ferð um 83 þúsund krónur. Um helmingurinn hafi verið vegna gistingarinnar. „Við reyndum að tala við hótelið en þeir bentu á að við værum með 34 herbergi sem þeir gætu ekki selt og spurðu hvernig okkur dytti þá í hug að við fengjum endurgreitt. Þannig að við sátum uppi með allan kostnað við ferðina," útskýrir Lilja sem kveður langflesta viðskiptavinina hafa verið sátta við það hvernig Expressferðir tóku á málinu. „Fólk skildi þetta mjög vel." Þetta var eina ferðin sem Expressferðir þurftu að aflýsa vegna gossins en aðrar ferðaskrifstofur og flugfélög hérlendis þurftu vitanlega að fella niður margar ferðir. Lilja kveður um algerlega einstakt mál að ræða. Búast megi við að endanleg niðurstaða þess verði fordæmisgefandi. „Spurningin er hvort allur kostnaður eigi eingöngu að falla á ferðaskrifstofuna eða flugfélögin," segir hún. Í umfjöllun Neytendastofu kemur fram það sjónarmið Expressferða að þar sem fluginu hafi verið aflýst vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna - svokallaðs „force majeure" bæri ferðaskrifstofunni ekki að endurgreiða ferðina alla. Var þar meðal annars vísað í greinargerð laga um alferðir. Neytendastofa segir hins vegar misræmi milli greinargerðarinnar og lagatextans sjálfs sem sé skýr um þetta atriði. Endurgreiða beri slíkar „alferðir" að fullu óháð því hvers vegna þeim er aflýst. Á hinn bóginn eigi viðskiptavinir ekki rétt á skaðabótum fyrir aukaútgjöld tengd ferðinni ef aflýst er vegna ófyrirsjánlegra aðstæðna. gar@frettabladid.is
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Innlent Fleiri fréttir Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Sjá meira