Innlent

Össur fer til Færeyja

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Mynd/Anton Brink
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, heldur í dag til Þórshafnar, þar sem hann mun eiga fund með Jørgen Niclasen, utanríkisráðherra Færeyja á morgun. Um er að ræða fund Hoyvíkurráðsins, sem sett var á stofn með Hoyvíkursamningnum, fríverslunarsamningi Íslands og Færeyja.

Helsta málið á dagskrá fundarins er rekstur Hoyvíkursamningsins. Einnig verður fjallað um samskipti landanna við ESB og EFTA, auk þess sem rætt verður um samstarf á sviði heilbrigðismála og ýmis önnur mál er varða hagsmuni landanna.

Þá undirrita utanríkisráðherrarnir samkomulag um samstarf á milli utanríkisráðuneytis Íslands og Færeyja á sviði rekstrarmála. Samkomulaginu er ætlað að vera grundvöllur að stuðningi og ráðgjöf Íslendinga við uppbyggingu utanríkisþjónustu Færeyinga.

Hoyvíkursamningurinn hefur verið í gildi í á fjórða ár og er víðtækasti viðskiptasamningur sem Ísland hefur gert, að fram kemur á vef utanríkisráðuneytisins. Samningurinn varðar ekki aðeins hefðbundin viðskipti, heldur er með honum stefnt að auknu samstarfi á m.a. sviðum menningarmála, orkumála, umhverfismála, heilbrigðismála, fjarskipta og ferðaþjónustu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×