Hollywood stígur í vænginn við Óskar frænda 14. desember 2010 11:00 Gagnrýnendur spá því að The Social Network eigi eftir að ná sér í komandi Óskarsverðlaun með nokkrum glæsibrag. Colin Firth þykir koma sterklega til greina sem sigurvegari í karlaflokki fyrir leik sinn í The King‘s Speech og Natalie Portman er enn sem komið er sigurstrangleg fyrir The Black Swan. Hún mun þó eflaust fá harða samkeppni frá Nicole Kidman fyrir Rabbit Hole og Halle Berry í Frankie and Alice.
Um þetta leyti ársins eru tvö orð vinsælust í Hollywood: „Oscar buzz“ eða „Óskarsmöguleiki“. Tilnefningarnar verða ekki tilkynntar fyrr en á nýju ári en aðrar verðlaunahátíðir eru farnar að draga upp víglínuna. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum eru þegar farnir að velta vöngum yfir hvaða myndir, leikarar og leikkonur eigi möguleika á gullkarlinum góða. Þeir nota gjarnan orðin „Oscar buzz“ sem þýðir að viðkomandi mynd, leikari eða leikkona þykir vera í þeim gæðaflokki að hún verðskuldi tilnefningu til Óskarsverðlauna. Svokallað Óskarstímabil í Ameríku er einnig nýhafið og kvikmyndaverin keppast við að frumsýna „vandaðar“ kvikmyndir og kynna þær í fjölmiðlum sem Óskarsvænar. Og það er kannski ekki seinna vænna. Mánudaginn 27. desember verða kjörseðlar sendir út til Akademíunnar og föstudaginn 14. janúar lýkur kosningu, atkvæðin verða talin og tilnefningarnar tilkynntar við hátíðlega athöfn í Samuel Goldwyn-kvikmyndahúsinu þriðjudaginn 25. janúar. Stóra stundin rennur síðan upp sunnudaginn 27. febrúar. Þangað til leggja starfsmenn kvikmyndaveranna og framleiðendur á sig mikla vinnu við að kynna hugsanlegar keppendur. Flestir fjölmiðlar vestanhafs telja öruggt að The Social Network, Facebook-myndin eftir David Fincher, verði tilnefnd til Óskarsverðlauna. Sumir ganga jafnvel svo langt að telja spennuna fyrir í flokknum „besta myndin“ alls enga, The Social Network eigi eftir að sigra nokkuð örugglega enda hefur hún sópað til sín verðlaunum hjá gagnrýnendum í New York, Los Angeles og Boston. Þar sem tíu myndir eru tilnefndar er ómögulegt að spá fyrir um hverjar eiga eftir að etja kappi við Facebook-skrímslið, kúrekatryllirinn True Grit eftir Coen-bræður gæti verið þar á meðal, ástralska kvikmyndin Animal Kingdom hefur fengið frábæra dóma og svo má ekki gleyma vísindaskáldsögutryllinum Inception eftir Christopher Nolan. Í leikaraflokknum hefur ekki borið mikið á Óskarsmöguleikum hvað karlpeninginn varðar. Nafn Justins Timberlake hefur þó verið nefnt í því samhengi en honum þykir takast nokkuð vel upp í margnefndri The Social Network. Orðin hafa einnig verið notuð yfir frammistöðu Colins Firth í The King‘s Speech, kvikmynd um talörðugleika Georgs sjötta sem hann sigrast á með nokkuð sérstökum hætti. Natalie Portman þykir hins vegar vera í forystu hvað varðar Óskarsvænleika snertir fyrir leik sinn í The Black Swan og framleiðendur Frankie and Alice eru farnir að nota orðin tvö til að lýsa túlkun Halle Berry á geðklofasjúklingi. Þá hefur Nicole Kidman fengið svipaðar upphrópanir í blöðunum fyrir kvikmyndina Rabbit Hole. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira