Grasrót VG skoraði á flokksforystuna Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. október 2010 22:07 Ragnar Arnalds, fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, er einn þeirra sem standa að áskoruninni.
Á málþingi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs um utanríkismál sem fram fór um helgina var lögð fram áskorun,í nafni 100 kjósenda og félaga í VG, um að flokksforystan stöðvi yfirstandandi aðlögunarferli að ESB. Þeir sem standa að áskoruninni vilja að stefnu VG verði fylgt í orði og á borði. Þeir sem að áskoruninni standa segja að ekki hafi verið um eiginlega undirskriftasöfnun að ræða heldur sjálfsprottið framtak og fleiri nöfn hafi bæst í hópinn síðan að áskorunin var birt á föstudag. Þeir sem standa að áskoruninni segja að á því rúma ári sem liðið sé frá því naumur meirihluti Alþingis tók ákvörðun um aðildarumsókn hafa forsendur breyst í grundvallaratriðum. Umsóknin snúist ekki lengur um að kanna hvað í boði sé af hálfu ESB, eins og áður hafi verið látið í veðri vaka, heldur sé nú að hefjast flókið ferli aðlögunar að regluverki og stofnanakerfi ESB með milljarða fjáraustri frá Brussel. Slíkar greiðslur frá Evrópusambandinu geri að engu þær vonir að hér fari fram lýðræðisleg og hlutlæg umræða um kosti og galla aðildar. Í öðru lagi hafi komið skýrt fram hjá stækkunarstjóra ESB að Evrópusambandið veiti ekki varanlegar undanþágur frá meginreglum Lissabonsáttmálans. Er þar meðal annars átt við þá reglu að Evrópusambandið taki sér úrslitavald til yfirráða yfir sjávarauðlindum aðildarríkjanna. Nýleg viðbrögð Evrópusambandsins við veiðum íslenskra skipa á makríl í íslenskri lögsögu sýni áþreifanlega hvers sé að vænta ef þjóðin afsali sér samningsrétti um veiðar úr deilistofnum í hendur ESB. Þeir sem stóðu að undirskriftasöfnuninni eru Anna Ólafsdóttir Björnsson, Brynja Björg Halldórsdóttir, Bjarni Harðarson, Gunnar Guttormsson og. Ragnar Arnalds.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira