Stálu golfbílum og fjórhjóli á Akureyri 8. september 2010 04:00 Golfbíll Mennirnir rúntuðu um á tveimur golfbílum og óku öðrum þeirra út í skurð.
Þrír menn um tvítugt hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir fjölmörg þjófnaðarbrot. Í sumum tilvikum voru tveir þeirra saman að verki en í öðrum allir þrír. Mönnunum er gefið að sök að hafa brotist inn í vélaskemmu við Golfklúbb Akureyrar í nóvember á síðasta ári. Þar stálu þeir fatnaði sem á vegi þeirra varð, svo og 120 lítrum af bensíni. Þá tóku þeir tvo golfbíla traustataki og óku um svæðið þar til annar bílanna lenti ofan í skurði. Eftir þetta stálu þeir fjórhjóli sem fannst síðan í skurði frammi í Eyjafjarðarsveit. Sláttutraktor stálu þeir við tjaldstæði í Kjarnaskógi, óku honum um svæðið og ýttu honum loks út í tjörn, þar sem hann fannst nokkrum dögum síðar. Dekkjum og felgum stálu þeir undan bíl í bænum. Að minnsta kosti fimm sinnum brutust mennirnir inn í ísbíl á Akureyri og stálu vörum úr honum. Mennirnir stálu bensíni til einkanota í allmörg skipti, dýrum tækjum sem þeir fundu í innbrotunum svo og peningum. Tíu ákærur í nítján liðum voru þingfestar á hendur mönnunum fyrir héraðsdómi.- jss
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira