Innlent

Icesave-viðræður hefjast eftir helgi

Samningaviðræður við Breta og Hollendinga vegna Icesave hefjast í næstu viku. Leiðtogar stjórnarflokkanna vonast til að þær geti tekið skamman tíma. Forsætisráðherra segir ólíðandi að endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum dragist á langinn vegna Icesave og þeim skilaboðum hafi verið vandlega komið áleiðis til Breta, Hollendinga og Evrópusambandsins.

Ríkisstjórnin mun vinna að því með stjórnarandstöðunni yfir helgina að ákveða vinnutilhögun og endanlega skipan í samninganefnd Íslands í viðræðum við Breta og Hollendinga. Viðræður hefjist að öllum líkindum í næstu viku. Þá skýrist hvort til verði nýr samningur um Icesave. Fjármálaráðherra segir ekki rétt eins og fullyrt hafi verið að núverandi ríkisstjórn hafi tekið fyrri Icesave viðræður út úr pólitískum farvegi Brussel viðmiðanna, þar sem taka átti tillit til erfiðrar og fordæmalausrar stöðu Íslands.

Mikilvægara sé hins vegar nú að huga að framtíðinni í þessum málum. Bretar og Hollendingar leggi áherslu á að stjórn og stjórnarandstaða komi sameiginlega að samningum og unnið hratt að niðurstöðu.

Endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun Íslands sem fram átti að fara í janúar hefur enn ekki átt sér stað. En Bretar og Hollendingar hafa beitt sér gegn því að hún færi fram án nýrra Icesavesamninga. Foræstisráðherra sagðist hafa lagt áherslu á það á fundi með forseta framkvæmdastjórnar evrópusambandsins að þessi mál væru ekki tengd saman.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×