Mamma Gógó framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 27. september 2010 09:55
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían kaus kvikmyndina Mamma Gógó sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2011 í rafrænni kosningu sem fram fór 21. - 24. september. Myndin fékk 43% atkvæða akademíumeðlima. Kosið var á milli átta mynda sem frumsýndar voru á tímabilinu 1. október 2009 - 30. september 2010. Leikstjóri myndarinnar og handritshöfundur er Friðrik Þór Friðriksson. Friðrik er einn helsti kvikmyndagerðarmaður þjóðarinnar. Hann hefur skrifað handrit og leikstýrt fjölda íslenskra kvikmynda, auk þess sem hann hefur verið öflugur framleiðandi íslenskra kvikmynda. Hann hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna árið 1992 fyrir myndina Börn náttúrunnar. Mamma Gógó segir frá Gógó sem er fullorðin kona sem hefur greinst með Alzheimer sjúkdóminn. Hún lendir í ýmsum vandræðum sprottnum af veikindunum. Sonur hennar, ungur kvikmyndagerðarmaður, er í fjárhagskröggum vegna framleiðslu kvikmyndar sinnar, Barna náttúrunnar. Með aðalhlutverk fara Kristbjörg Kjeld, Hilmir Snær Guðnason, Gunnar Eyjólfsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Inga María Valdimarsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Kristbjörg Kjeld hlaut Edduna fyrir leik sinn í myndinni. Bandaríska kvikmyndaakademían hóf að veita Óskarsverðlaun fyrir bestu kvikmyndina á erlendu tungumáli árið 1947. Hverju landi er boðið að senda inn eina kvikmynd sem framleidd hefur verið á tilteknu tólf mánaða tímabili. Innsendar kvikmyndir fá sérstaka sýningu þar sem nefnd gefur hverri mynd einkunn. Þær fimm myndir sem fá hæstu einkunn eru tilnefndar til Óskarsverðlauna í flokknum besta kvikmyndin á erlendu tungumáli. Fyrsta framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna var kvikmyndin Land og synir árið 1981. Tvær íslenskar kvikmyndir hafa hlotið tilnefningu, ein í fullri lengd og ein stuttmynd. Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson var tilnefnd árið 1992 í flokknum besta erlenda kvikmyndin og Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson var tilnefnd í flokknum besta leikna stuttmyndin árið 2006.
Mest lesið Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Innlent Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Erlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Erlent Fleiri fréttir Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Sjá meira