Halli í Andra býður sig fram í prófkjöri 5. febrúar 2010 12:03 Halli í Andra
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fer fram á morgun, laugardag. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri sækist einn eftir fyrsta sætinu en fimm manns sækjast eftir öðru sæti; Bryndís Haralds, Eva Magnúsdóttir, Hafsteinn Pálsson, Herdís Sigurjónsdóttir og Örn Jónasson. Athygli vekur að meðal fimmtán frambjóðenda er hinn góðkunni athafnamaður og hestamaður Haraldur Haraldsson í Andra en hann býður sig fram í fjórða sæti. Haraldur er jafnframt aldursforsetinn í frambjóðendahópnum, 65 ára. Spurður hversvegna hann ákvað að fara í framboð svarar Haraldur að hann vilji leggja sitt af mörkum fyrir þá sem vildu njóta lífsins í Mosfellsbæ þegar árin færðust yfir og væru í fullu fjöri. Hann vilji reyna að koma í veg fyrir að samskonar ástand skapist í Mosfellsbæ og varð til þess að hann hrökklaðist úr Árbæ og Selási eftir þrjátíu ára búsetu, - það vantaði húsnæði sem hentaði fólki 60 ára og eldra. Haraldur, sem jafnan er kenndur við fyrirtæki sitt, Andra, hefur víða markað spor í atvinnulífinu. Hann var einn af frumkvöðlum krítarkortavæðingar landsins með stofnun Kredidkorta hf. fyrir 30 árum, var í eigendahópi Stöðvar 2 á frumbýlisárunum, stóð að úthafsútgerð í Kyrrahafi og var stjórnarformaður og aðaleigandi Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira