Hafa fundið 185 beinagrindur 29. júlí 2010 06:15 Beinagrindin sem ber einkenni Pagets-sjúkdómsins í gröf sinni á Skriðuklaustri. mynd/steinunn kristjánsdóttir
Beinagrind af manneskju með Pagets-sjúkdóminn fannst við fornleifauppgröft á Skriðuklaustri í Fljótsdal í vikunni. Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur og ábyrgðarmaður verkefnisins, segir margt merkilegt hafa komið í ljós við uppgröftinn, en þetta er níunda sumarið sem unnið er við hann. „Við vitum núna að í klaustrinu var starfræktur spítali frá árunum 1490 til 1550 og þetta er sá elsti sem hefur fundist hér á landi,“ segir hún. „Það var ekki vitað að klaustrin hefðu stundað slíka starfsemi fyrr en við byrjuðum að finna beinagrindir sjúklinga árið 2003.“ Búið er að grafa upp 185 beinagrindur til þessa, en þetta er í fyrsta sinn sem manneskja með Pagets-sjúkdóminn hefur fundist, og segir Steinunn að einungis eitt tilvik hafi áður fundist hér á landi. „Við höfum fundið mörg tilfelli af sárasótt og berklum, en þetta tilvik var ólíkt þar sem sjúkdómurinn veldur ofvexti og afmyndun í beinum,“ segir hún. Rekstrartími klaustursins og spítalans var í kring um sextíu ár og segir Steinunn þann mikla fjölda sem þar hefur dvalið gefa til kynna að fólk hafi leitað þar hælis víðsvegar að af landinu og jafnvel erlendis frá. - sv
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira