Jarðhitinn sparaði 67 milljarða króna í fyrra 30. september 2010 19:00
Nýting jarðvarma til húshitunar sparar íslenska þjóðarbúinu 50 til 80 milljarða króna á ári, sem annars færu til olíukaupa. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Orkustofnunar. Skýrslan, sem er eftir þau Ingimar Haraldsson, Þóru Þórisdóttur og Jónas Ketilsson, staðfestir það sem menn hafa löngum vitað; að jarðhitinn er einhver mesta auðlind Íslendinga. Niðurstaðan er í stórum dráttum sú að ef jarðhitans nyti ekki við og híbýli væru kynnt með olíu þyrfti þjóðin að leggja til 50-80 milljarða kr. aukalega á ári til að standa undir innflutningi á olíu til húshitunar. Uppsafnaður núvirtur sparnaður frá árinu 1970 er talinn nema 1.330 milljörðum króna. Á síðasta ári er sparnaður Íslendinga talinn hafa numið 67 milljörðum króna, en það jafngildir um 210 þúsund krónum á hvern íbúa landsins. Skýrsluhöfundar segja jafnframt að notkun jarðhitans auki orkuöryggi og verji þjóðina fyrir utanaðkomandi sveiflum á alþjóðlegum olíumörkuðum og gengi gjaldmiðla. Þá sé ótalinn efnahagslegur ávinningur vegna annarra nota jarðhitans, svo sem til raforkuvinnslu, iðnaðar, fiskeldis og ylræktar. Þá nefna þeir að mörg jarðhitasvæði eru aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem sækjast í að upplifa gjósandi vatnshveri og gufuhveri og böð í jarðhitavatni, sem afli þannig tekna fyrir þjóðarbúið. Jarðhitinn hafi einnig jákvæð samfélagsleg og umhverfisleg áhrif.
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Sjá meira