Tekjurnar nýtist í atvinnufjárfestingu 20. janúar 2010 05:45 Magnús orri schram
Skattleggja á séreignarsparnað og nota afraksturinn til fjárfestingar í atvinnulífinu. Þetta segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, en hann á jafnframt sæti í efnahags- og skattanefnd þingsins. Magnús Orri segir að um leið og ríkið sníði sér stakk eftir vexti þurfi að huga að uppbyggingu atvinnulífsins og tekjuaukningu ríkisins til lengri tíma. „Og það vil ég gera með skattlagningu séreignarsparnaðar," segir hann og bætir við að þannig megi með einskiptisaðgerð, skattlagningu stofns séreignarinnar, færa ríkinu um 80 milljarða króna. Árlegar tekjur ríkisins af skattlagningunni nemi svo um átta milljörðum króna. „Þessa fjármuni á hins vegar ekki að nýta til að fjármagna hallarekstur ríkisins eins og sumir hafa lagt til, heldur til fjárfestinga í atvinnulífinu." Þar segir Magnús Orri meðal annars vert að horfa til langtímaverkefna á borð við rannsókna- og þróunarstarf fyrirtækja, fjármögnunar skattalegra hvata og leiða til að auka aðgang að lánsfé á viðunandi kjörum. Skattlagningu séreignarsparnaðarins leggur Magnús Orri til í tengslum við fjárlagagerð næsta árs, en að auki segir hann nauðsynlegt að auka aðhald í útgjöldum ríkisins. Hann bendir á að frá 2000 til 2009 hafi ekki tekist að hefta útgjaldavöxt ríkisins að neinu marki. „Ein helsta áskorunin sem íslenskir stjórnmálamenn standa nú frammi fyrir er að standast þrýstihópa og ganga ákveðið fram við niðurskurð í fjárlagagerð næsta árs," segir Magnús Orri.- óká
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira