Innlent

Fjárlagafrumvarpi dreift eftir þingsetningu á morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá þingsetningu árið 2008. Mynd/ GVA.
Frá þingsetningu árið 2008. Mynd/ GVA.
Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö á morgun. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu þegar klukkan er 25 mínútur gengin í tvö.

Séra Halldóra J. Þorvarðardóttir, prófastur Suðurprófastsdæmis, predikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Alþingi.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins. Forseti Íslands setur 139. löggjafarþing og að því loknu flytur forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, ávarp. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til klukkan fjögur. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið klukkan fjögur verður dregið um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011 verður þá útbýtt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×