Samstarfi Íslands við AGS lýkur í ágúst Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. september 2010 12:07 Franek Rozwadowski, fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, segir að árangur af vinnu við efnahagsáætlunina sé tilkomumikill.
Stefnt er að því að samstarfi Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ljúki á réttum tíma í ágúst á næsta ári þrátt fyrir tafir á endurskoðun efnahagsáætlana. Í gær samþykkti stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar fyrir Ísland og fær íslenska ríkið aðgang að 160 milljónum dollara, jafnvirði átján milljarða króna, sem munu fara í að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Forsvarsmenn sjóðsins segja að samstarfið við Íslendinga hafi gengið vel. Franek Rozwadowski, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi segir að árangurinn hafi verið tilkomumikill. Verðbólga sé á niðurleið og útlit fyrir að hagvöxtur taki við sér. Þrátt fyrir miklar tafir á endurskoðun efnahagsáætlana, m.a vegna Icesave-málsins, er samstarfið við sjóðinn á áætlun eftir þessa þriðju endurskoðun. Og er stefnt að því að samstarfinu ljúki á réttum tíma, í ágúst á næsta ári, að sögn Franeks Rozwadowskis. Endurskoðunin sem samþykkt var í gær var þriðja endurskoðunin, en síðan er gert ráð fyrir einni endurskoðun í hverjum ársfjórðungi fram í ágúst 2011. Ljóst er að sjóðurinn hefur beitt öðrum og nýjum áherslum í samstarfi við Ísland enda ekki daglegt brauð fyrir hann að starfa með þróuðu vestrænu ríki. Hversu þungbær endurgreiðslan á lánum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður ræðst af því hvort þeir fjármunir sem fengnir hafa verið að láni verði nýttir, en sem stendur hafa þessir fjármunir verið notaðir að mestu leyti til að styrkja forða Seðlabankans. Að því gefnu að þeim forða verði ekki eytt í inngrip á gjaldeyrismarkaði verður til innistæða fyrir afborgun lánanna þegar að gjalddaga þeirra kemur. Ríkissjóður þarf nær ekkert að greiða af erlendum lánum fyrr en á næsta ári en þá fellur í gjalddaga eins milljarðs evra skuldabréf sem ríkissjóður gaf út árið 2006 til að styrkja gjaldeyrisforðann.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira