Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir hrottanum í Laugardal 13. desember 2010 17:26 Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um að 23 ára gamall karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til 7. janúar 2011. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að tuttugu og þriggja ára karlmaður, sem réðist á stúlku á göngustíg við Suðurlandsbraut í Reykjavík í október síðastliðnum, sæti gæsluvarðhaldi til 7. janúar 2011. Maðurinn hefur játað að hafa ráðist á sextán ára gamla stúlku við Suðurlandsbraut í Reykjavík þann 11. október síðastliðinn. Að öðru leyti bar hann við minnisleysi vegna ölvunar en í skýrslutöku hjá lögreglu kvað hann enga sérstaka ástæðu hafa verið fyrir árásinni, „nema að hann hafi verið mjög reiður, þar sem honum hafi verið vísað út úr strætisvagni." Málið vakti mikinn óhug enda átti árásin sér stað um miðjan dag. Stúlkan hlaut meðal annars slæma áverka á höfði en komst við illan leik upp á Suðurlandsbraut þar sem vegfarandi kom henni til aðstoðar og hringdi á sjúkrabíl. Í kjölfarið leituðu lögreglubílar og lögreglumenn á mótorhjólum að manninum í Laugardalnum og víðar, án árangurs. Stúlkan var lamin í höfuðið með barefli og hlaut sár á hnakka og enni og missti meðvitund. Hún hlaut marbletti á hálsi, framhandlegg, úlnlið og hendi auk axlar og upphandleggs auk annara áverka. Að mati lögreglustjóra er um sérlega fölskulega árás að ræða þar sem tilviljun réð því hver fyrir varð. „Tilgangurinn hafi verið sá einn að beita ofbeldi. Sú aðferð sem notuð sé þyki sérlega vítaverð og þyki mildi að ekki fór verr. Þá sé óhætt að segja að árás sem þessi sé til þess fallin að hafa veruleg áhrif á sálarheill manna." Gæsluvarðhalds úrskurðurinn rennur út, eins og fyrr segir, föstudaginn 7. janúar klukkan 16:00.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira