Innlent

Mesta jafnréttið er á Íslandi

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu Þjóðanna.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu Þjóðanna.

Ísland heldur efsta sætinu á jafnréttislista World Economic Forum, annað árið í röð. Samkvæmt skýrslunni er Ísland það land í heiminum þar sem mest jafnræði ríkir á milli karla og kvenna.

Norrænar þjóðir tróna efst á listanum en Noregur er í öðru sæti og Finnland í því þriðja. Svíþjóð mælist í fjórða sæti og síðan koma Ný Sjálendingar í því fimmta. Skýrslan mælir jafnræði kynjanna í stjórnmálum, menntun, atvinnu og í heilbrigðismálum.

Bretar mælast í fimmtánda sæti sem er engin breyting frá fyrra ári en mesta fallið á listanum eiga Frakkar sem mælast nú í 46 sæti en í fyrra var Frakkland í 18 sæti. Bandaríkin hafa hinsvegar tekið á rás upp listann og mælast nú í 19 sæti en voru í 31 sæti í fyrra, þetta skýrist að miklu leyti af auknu kynjajafnvægi í ríkisstjórn Bandaríkjanna eftir að Barack Obama tók við stjórnartaumunum þar í landi. Þá hefur dregið úr launamun kynjanna í ameríku á árinu.

Árangur Bandaríkjanna þýðir að ríkið trónir nú efst á listanum af ríkjum Norður Ameríku, en hingað til hafa Kanadamenn yfirlett leitt heimsálfuna á þessu sviði. Þau ríki sem þykja standa sig verst af öllum í skýrslunni eru hinsvegar Pakistan, Chad og Yemen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×