Innlent

10 mánaða fangelsi fyrir kannabisræktun

Karlmaður var í dag dæmdur í tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að rækta kannabisplöntur í sölu og dreifingarskyni. 206 plöntur fundust á heimili mannsins í Hveragerði og viðurkenndi hann fyrir dómi að hafa ræktað plönturnar. Hann viðurkenndi einnig að hafa átt um 1,3 kíló af muldum laufblöðum og stönglum sem fundust heima hjá honum. Hann neitaði því hinsvegar staðfastlega að hafa ætlað að selja efnin og sagði þau eingöngu til eigin neyslu.

Dómari lagði ekki trú á þann framburð enda væri magnið langt umfram það sem vænta mætti að hefði verið til einkaneyslu. Dómara þótti heldur ekki ástæða til að skilorðsbinda refsinguna enda var þetta í annað sinn á tveimur og hálfu ári sem maðurinn er uppvís að ræktun kannabisplantna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×