Innlent

Meintur fíkniefnasmyglari laus úr fjögurra mánaða varðhaldi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hæstiréttur hefur úrskurðað þýska konu sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá 18. júní síðastliðinn í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. nóvember næstkomandi eða þangað til að dómur fellur í máli ákæruvaldsins gegn henni. Hæstiréttur úrskurðaði líka að önnur þýsk kona sem grunuð er um aðild að sama máli skuli vera í farbanni fram að sama tíma.

Konurnar eru grunaðar um að hafa tekið þátt í að smygla til landsins tæplega tuttugu lítrum af vökva sem innihélt amfetamínbasa í VW Passat bifreið í Norrænu þann 17. júní síðastliðinn. Konurnar hafa setið í gæsluvarðhaldi frá 18. júní síðastliðinn, eða í rétt tæpa fjóra mánuði. Ákæra gegn þeim var gefin út þann 8. september.

Héraðsdómur Reykjaness hafði úrskurðað báðar konurnar í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. nóvember. Lögmenn þeirra kærðu þann úrskurð til Hæstaréttar sem staðfesti úrskurðinn í öðru tilfellinu vegna þess að þáttur þeirrar konu í meintu broti hafi verið meiri. Í tilfelli hinnar konunnar komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að skilyrðum fyrir gæsluvarðhaldi væri ekki fullnægt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×