Innlent

Réðust inn á heimili í Hveragerði

http://edit.visir.is/apps/pbcs.dll/editsak?Avis=XZ

Fjórar manneskjur í annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu, frömdu húsbrot í Hveragerði í nótt. Fólkið ruddist þar inn á heimili sambýlisfólks um fimmtugt, hafði í hótunum og þóttist vera að innheimta einhverja skuld.

Karlmanninum á heimilinu tókst að koma fólkinu út og kalla á lögreglu, sem fann fólkið í heimahúsi í bænum skömmu síðar og færði það í fangageymslur,

Fólkið, ein kona og þrír karlar, verða yfirheyrð í dag, þegar víman verður runnin af því.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×