Innlent

Brotist inn í Baðhúsið

Linda Pétursdóttir rekur Baðhúsið
Linda Pétursdóttir rekur Baðhúsið Mynd: GVA

Brotist var inn í líkamsræktarstöðina Baðhúsið við Brautarholt undir morgun og þaðan meðal annars stolið tölvu úr afgreiðslunni. Einnig var rótað mikið til í leit að verðmætum.

Þjófurinn komst inn um glugga á bakhlið og hefur líklega farið þar út líka, en hann er ófundinn.

Þeir sem hafa upplýsingar um málið eru hvattir til að hafa samband við lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×