Innlent

Stefán Ólafsson: Velferðarkerfið mildaði höggið í kjölfar hrunsins

Öflugt velferðarkerfi á Íslandi sá til þess að kreppan hitti Íslendinga ekki eins illa fyrir og margar aðrar þjóðir. Þetta kom fram í máli Stefáns Ólafssonar prófessors sem hélt erindi á aðalfundi BSRB sem nú stendur yfir. Þannig segir Stefán að velferðarkerfið muni nýtast til að milda höggið sem efnahagshrunið hafði í för með sér. Í erindinu lagði Stefán fram tölulegar staðreyndir um að lífskjör fólks séu best þar sem velferðarkerfið er sterkast, til að mynda á Norðurlöndunum.

„Spurður hvort réttara væri að skera niður í velferðarkerfinu eða hækka skatta til að mæta fjárþörf ríkisins, sagði hann að án þess að hann ætlaði að gerast talsmaður skattahækkana þá hefði það sýnt sig að tillögur um niðurskurð hefðu komið meira við kaunin á fólki en skattahækkanir," segir í frétt um málið á heimasíðu BSRB. „Skattar á Íslandi væru enn lægri en það sem gerðist á öðrum Norðurlöndum, þrátt fyrir hækkanir síðustu ára. Því væru skattahækkanir til skemmri tíma skynsamlegri, það hefði enda verið gert í Svíþjóð upp úr 1990."

Stefán segir að markmið Íslendinga eigi að vera að fá sem „öflugast velferðarkerfi fyrir sem minnstan pening." Hann ítrekaði einnig að hann væri að ræða um hækkanir sem skárri kost af tveimur slæmum og þá til skamms tíma.

Að mati Stefáns hefur stefna stjórnvalda hlíft þeim sem lægstu launin hafa og lífeyrisþegum. „Spurður um almenna niðurfærslu skulda sagðist hann ekki sjá hvernig ætti að greiða fyrir hana; sjálfur væri hann talsmaður þess að þeim sem væru í sárustu neyðinni yrði hjálpað. Hann minnti á að tveir af hverjum þremur sem eru á vanskilaskrá hafi verið þar fyrir hrun. Hann sagði umræðuna í fjölmiðlum gefa mjög skakka mynd af ástandinu og staðreyndir væru markvisst falsaðar með átaki," segir í frétt BSRB.

„BSRB hefur lagt áherslu á að velferðarkerfið sé hornsteinn samfélagsins og sé skorið þar of mikið niður muni það koma niður á lífskjörum þjóðarinnar. Stefán segir það ómótmælanlegt að þar sem norrænt velferðarkerfi er við lýði, þar hafi fólk það best; jafnt í kreppu sem eðlilegu árferði."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×