Innlent

Bætist í hóp mótmælenda

Birgitta ber tunnuna með klaufhamri.
Birgitta ber tunnuna með klaufhamri. MYND/Sigurjón

Um fjörutíu og fimm manns eru nú samankomnir fyrir utan Stjórnarráðshúsið og fer þeim fjölgangi en þar var boðað til tunnumótmæla klukkan tíu í dag.

Ríkisstjórnarfundur stendur nú yfir og vekur athygli að ráðherrabílarnir eru ekki fyrir framan húsið eins og venja er heldur hefur þeim verið lagt aftan við húsið innan girðingar sem lögregla setti upp. Um fimmtán lögreglumenn eru fyrir utan húsið en mótmælin hafa farið friðsamlega fram.

Barið er á tunnur og hávaði framkallaður á ýmsan hátt. Á myndinni má meðal annars sjá Birgittu Jónsdóttur, þingmann Hreyfingarinnar.




Tengdar fréttir

Fámenn og friðsæl mótmæli

Rúmlega tuttugu manns standa við tunnur fyrir utan Stjórnarráðshúsið og mótmæla. Lögreglan er með nokkurn viðbúnað eftir að skemmdarverk voru unnin á húsinu í nótt af ölvuðum manni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×