Innlent

Unglingar borga þúsundir í von um að hitta Ronaldo

Erla Hlynsdóttir skrifar
Ungmenni landsins hafa flykkst á Grand Hótel í von um að sjá Ronaldo. Sum þeirra hafa jafnvel borgað sig þar inn í ræktina
Ungmenni landsins hafa flykkst á Grand Hótel í von um að sjá Ronaldo. Sum þeirra hafa jafnvel borgað sig þar inn í ræktina Mynd: CoverMedia

Nokkuð hefur borið á því í dag að unglingar borgi sig inn á líkamsræktarstöðina Grand Spa í kjallara Grand Hótels til að freista þess að hitta knattspyrnugoðið Cristiano Ronaldo.

Heimildamaður fréttastofu sem er fastagestur í Grand Spa sagðist í dag hafa orðið var við óvenju mikinn fjölda ungmenna í ræktinni sem hefðu borgað sig þar inn í von um að bera Ronaldo augum.

Þegar blaðamaður hafði samband við Grand Spa fengust engar upplýsingar um málið og borið við trúnaði við viðskiptavini.

Þess má geta að reiða þarf fram 4600 krónur ef ætlunin er að mæta í eitt skipti í Grand Spa.

Líkamsræktarstöðin var opnuð árið 2007 og var þá sérstaklega stefnt að því að gera hana að sannkallaðri lúxus-heilsurækt fyrir efnaðri hluta Ílandsmanna.

Ronaldo dvelur á Grand Hótel ásamt liðsfélögum sínum í portúgalska landsliðinu í knattspyrnu sem spilar í kvöld við íslenska landsliðið á Laugardalsvelli.

Ekki hefur heyrst af því að ungmennin hafi haft erindi sem erfiði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×