Innlent

Árásarmannsins enn leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að manni, sem réðst á 16 ára stúlku í Laugardalnum í Reykjavík síðdegis í gær og veitti henni áverka með steini.

Eftir því sem næst verður komist hefur engin verið yfirheyrður vegna málsins og engin sérsatkur mun liggja undir grun. Stúlkan, sem komst undan árásarmanninum og upp á Suðurlandsbraut, þar sem vegfarandi kom henni til aðstoðar, meiddist ekki alvarlega og fékk að fara heim eftir aðhlynningu á Slysadeild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×