Innlent

Sprengjusveitin komin um borð í Skinney

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eru nú komnir um borð í togbátinn Skinney sem fékk tundurdufl í veiðarfærin í morgun. Skipið er úti fyrir Rifi á Snæfellsnesi og flutti björgunarsveitarbátur sveitina um borð í Skinney.

Verið er að kanna hvort forsprengja sé í duflinu áður og reynist sú raunin verður hún sprengd á hafi úti.






Tengdar fréttir

Pollrólegir með tundurdufl á þilfarinu

„Við erum pollrólegir,“ segir Margeir Gumundsson, skipstjóri á togbátnum Skinney en skipverjar fengu tundurdufl í veiðarfærin en þeir voru við humarveiðar í Jökuldjúpi sunnan við Snæfellsjökul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×