Þórður Friðjónsson: Burt með sérlausnir og pólitísk afsktipti 8. september 2010 10:21 Þórður Friðjónsson.
Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar segir að Íslendingar verði að hverfa sem fyrst af braut sérlausna og pólitískra afskipta eigi þjóðin að ná að skipa sér á bekk með bestu hagkerfum heims. Hann ritar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann bendir á stöðu Norðurlandanna sem öll teljist til bestu hagkerfa í heimi. Að mati Þórðar ber Ísland öll megin einkenni norræna efnahagslíkansins en að agaðan markaðsbúskap skorti. Norðurlöndin byggja á tveimur stoðum að sögn Þórðar, velferðarkerfinu annars vegar og á vel skipulögðum markaðsbúskap hins vegar. „Ísland virðist ekki komið eins langt í þessum efnum og umræddar frændþjóðir. Til marks um það eru mikil pólitísk afskipti sem tíðum leiða til sérlausna af ýmsu tagi - og jafnvel upptöku samninga sem gerðir hafa verið í góðri trú. Það er t.a.m ekki einleikið hversu mörg mál enda á borði ráðherra og festast þar í lengri eða skemmri tíma. Magma er nærtækt dæmi sem og Helguvíkurverkefnið. Þá er afskaplega óheppilegt hversu það hefur dregist að aflétta þeirri óvissu sem sjávarútvegurinn býr við vegna endurskoðunar kvótakerfisins," skrifar Þórður. Þórður bendir einnig á að agaður markaðsbúskapur geti ekki grundvallast á sérlausnum sem ráðist af duttlungum ráðamanna á hverjum tíma. Hann byggist á skýrum og stöðugum leikreglum. „Þessi sjónarmið hafa ekki verið í hávegum höfð hér á landi, samanber nýja úttekt OECD meðal 48 landa á takmörkunum á erlendri fjárfestingu. Aðeins Kína telst búa við meiri takmarkanir en Ísland. Hin Norðurlöndin eru hins vegar öll meðal þeirra landa sem búa við minnstar takmarkanir að þessu leyti og ekki kemur á óvart að Finnland, á toppi lista Newsweek, er opnast Norðurlanda fyrir erlendri fjárfestingu." „Hverfa þarf sem fyrst af þessari braut sérlausna og pólitískra afskipta," skrifar Þórður. „Það er alveg ljóst að núverandi skipulag og vinnulag mun ekki færa okkur bætt lífskjör og stöðu meðal þeirra þjóða sem standa sig best á sviði efnahagsmála. Við þurfum því sem fyrst að virkja markaðinn með svipuðum hætti og hin Norðurlöndin hafa gert með góðum árangri og reka hér á landi öflugan markaðsbúskap eins og þar er gert. Bestu hagkerfi í heimi verða ekki byggð á sérlausnum heldur markaðslausnum." Grein Þórðar má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira