Innlent

Herjólfur til Þorlákshafnar

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Herjólfur í Landeyjahöfn Ekki reyndist unnt að sigla Herjólfi í Landeyjahöfn í gær líkt og ráðgert hafði verið. Líkt og síðdegis á mánudag hamlaði veður för.
Herjólfur í Landeyjahöfn Ekki reyndist unnt að sigla Herjólfi í Landeyjahöfn í gær líkt og ráðgert hafði verið. Líkt og síðdegis á mánudag hamlaði veður för. Fréttablaðið/Stefán
Vart hefur orðið við vöruskort í verslunum í Vestmannaeyjum, en ferðir Herjólfs hafa legið niðri frá því á mánudag. Flogið var með lyf og aðrar nauðsynjar út í Eyjar.

Ferðir skipsins hafa fallið niður vegna grynninga í innsiglingu þess í Landeyjahöfn og vegna veðurs. Áætlað er að Herjólfur sigli nú í morgunsárið til Þorlákshafnar. Síðar í dag er ráðgert að sigla samkvæmt bráðabirgðaáætlun sem kynnt var á mánudag. Hún gerir ráð fyrir þremur ferðum á dag og þá á flóði til þess að forða því að skipið taki niðri.

Fulltrúar samgönguráðuneytisins, Vegagerðarinnar, Siglingastofnunar og Eimskips funduðu með samgöngunefnd Alþingis í gærmorgun til þess að kynna nefndinni stöðu mála.

Björn Valur Gíslason, formaður samgöngunefndar, segir nefndarmenn hafa fengið að vita að hlé það sem orðið hefur á ferðum Herjólfs skrifist á tilfallandi aðstæður sem hamli siglingum milli Eyja og Landeyjahafnar. Þær þýði ekki að brostnar séu einhverjar þær forsendur sem miðað var við þegar lagt var í gerð Landeyjahafnar.

„Við leituðum skýringa hjá þessum aðilum og fengum að vita að þarna væru margir samverkandi þættir sem hefðu áhrif. Annars vegar er það ríkjandi óhagstæð vindátt sem hundsar allt meðaltal ríkjandi vindátta síðustu ára og síðan er mikill efnisburður í kjölfar Eyjafjallagossins,“ segir hann og telur efnisburðinum hafa verið þannig lýst að á um tveimur mánuðum hafi fallið jafnmikil aska og spáð var um framburð á tíu ára tímabili.

„Og síðan er náttúrulega það sem vitað var, að höfnin er byggð fyrir annars konar skip en Herjólf.“

Björn Valur segir að ekki liggi enn fyrir hver kunni að vera kostnaðarauki vegna þessara vandræða. „En ef um kostnaðarauka er að ræða við rekstur hafnarinnar þá er það eitthvað sem gera þarf ráð fyrir við fjárlagagerð næsta árs,“ segir hann. Ekki gerir Björn Valur þó ráð fyrir að kostnaður aukist mikið. Núna falli helst til kostnaður vegna þess að kalla hafi þurft dýpkunarskip í Bakkafjöru heldur fyrr en ráð var fyrir gert.

Björn Valur segir að á fundinum hafi jafnframt komið fram að Vegagerðin ætti í viðræðum við sveitarfélagið Ölfus um að Herjólfur fengi að leggja að í Þorlákshöfn í stöku tilvikum, en ekki hafi verið talin ástæða enn til að beina skipinu þangað. Þær viðræður séu aukinheldur ekki mjög langt komnar.

Þá segir Björn Valur verið að skoða hvort grípa megi til annars konar aðgerða til að draga úr framburði gosefnis, svo sem með gerð einhvers konar sandvarnargarða.

Björn Valur Gíslason



Fleiri fréttir

Sjá meira


×