Innlent

Ríkisendurskoðun ítrekar þriggja ára gamlar ábendingar

Ríkisendurskoðun hefur ítrekað þrjár af fimm ábendingum sem stofnunin setti fram í skýrslu um sameiningu St. Jósepsspítala og Sólvangs árið 2007. Aðeins tvær hafa verið framkvæmdar að fullu að því er segir á heimasíðu stofnunarinnar.

Í nýrri skýrslu ítrekar Ríkisendurskoðun hinar þrjár: að ráðuneytið geri árangursstjórnunarsamning við stofnunina, að deildarstjórar taki virkari þátt í gerð fjárhagsáætlana og að svokölluð DRG kostnaðargreining verði innleidd á stofnuninni.

„Samkvæmt 9. gr. laga um Ríkisendurskoðun felst stjórnsýsluendurskoðun í því að kanna meðferð og nýtingu ríkisfjár. Stofnunin skal vekja athygli á því sem hún telur að úrskeiðis hafi farið í rekstri og benda á leiðir til úrbóta. Hverri stjórnsýsluúttekt er fylgt eftir með athugun á því hvernig brugðist hefur verið við ábendingum hennar. Slík eftirfylgni fer fram um það bil þremur árum eftir útgáfu skýrslu," segir ennfremur á heimasíðu Ríkisendurskoðunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×