Innlent

Telja settan saksóknara vanhæfan

Valur Grettisson skrifar
Mótmæli við Héraðsdóm Reykjavíkur. Myndin er úr safni.
Mótmæli við Héraðsdóm Reykjavíkur. Myndin er úr safni.

Fyrirtaka í máli svokallaðra níumenninga hófst klukkan hálf níu og er dómssalurinn þéttsetinn. Ekki hefur komið til átaka á milli lögreglu og mótmælenda í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir hafa meðal annars verið ákærðir fyrir árás á Alþingi.

Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra af þeim níu sem ákærðir eru í málinu, hefur sagt að Lára V. Júlíusdóttir sé vanhæf sem settur saksóknari í málinu vegna þess að hún er kjörin fulltrúi Alþingis í bankaráði Seðlabanka Íslands. Lára er formaður bankaráðsins. Með því sé Lára sérstakur trúnaðarmaður Alþingis, sem sé bæði kærandi málsins og jafnframt hinn meinti brotaþoli.

Ragnar Aðalsteinsson krafðist þess jafnframt að dómarinn í málinu víki vegna þess að dómarinn óskaði eftir því að lögregla væri viðstödd réttarhöldin. Bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur höfnuðu þeirri kröfu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×