Innlent

Skemmta sér saman í haust

Kerið í Gljúfurá Sumarið hefur leikið við veiðimenn.fréttablaðið/svavar
Kerið í Gljúfurá Sumarið hefur leikið við veiðimenn.fréttablaðið/svavar
Skemmtinefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur stefnir að því að sameina alla stangveiðimenn í einni allsherjar uppskeruhátíð í lok október í tilefni að vertíðarlokum.

Að því er kemur fram á vef stangaveiðifélagsins er ætlunin að virkja ýmis stangveiðifélög og veiðiklúbba til þess að koma og skemmta sér saman. Yrði þetta í fyrsta skipti sem slíkur atburður yrði skipulagður á svo víðtækum grunni. Sífellt fleiri leggja fyrir sig stangveiði. Má til dæmis nefna að í haust fór félagatala Stangaveiðifélags Reykjavíkur yfir fjögur þúsund í fyrsta skipti. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×