Innlent

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar

MYND/Arnþór

Herjólfur hélt frá Vestmannaeyjum klukkan sex í morgun, áleiðis til Þorlákshafnar. Þaðan fer skipið svo aftur til Eyja klukkan tíu.

Í ráði er svo að reyna að sigla til Landeyjahafnar klukkan þrjú í dag, en það kann að breytast þannig að aftur verði siglt til Þorlákshafnar.

Bílaþilfar skipsins var fullt við brottför í morgun og þó nokkur fjöldi farþega fór með. Nú er hinsvegar ekki lengur hægt að fá kojupláss í skipinu, þannig að farþegarnir eru allir í matsal og setustofum.

Eftir því sem fréttastofan kemst næst er sanddæluskipið Perlan enn í Reykjavík, en það á að dæla sandi og eldfjallaeðju úr Landeyjahöfn við fyrsta tækifæri.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×