Innlent

Steingrímur: Árni á að skammast sín og Þór er sorglegt eintak

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.

Stóryrði gengu á milli manna á Alþingi í morgun í umræðum um störf þingsins. Árni Johnsen kenndi Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra um ófarirnar varðandi Landeyjahöfn og benti á að verkið væri hálfklárað, því ávallt hefði verið gengið út frá því að nýtt skip þyrfti á milli lands og Eyja, sem ekki ristir eins djúpt og Herjólfur gerir nú.

Þá hefði Steingrímur á sinni tíð sem samgönguráðherra komið í veg fyrir að Herjólfur yrði lengri en raunin varð á endanum þegar hann var smíðaður, þrátt fyrir lítinn kostnað því samfara.

Þór Saari tók einnig til máls og sakaði suma þingmenn VG um að hafa tekið stöðu með útgerðarmönnum í vinnu sáttanefndar um fiskveiðistjórnun.

Steingrímur tók sneiðarnar óstinnt upp og sagði Árna að skammast sín.

„Sumir kjósa að misnota hér aðstöðu sína og fara með landráðabrigslum að mönnum, beinum eða óbeinum," sagði Steingrímur meðal annars og talaði einnig um hefðbundna „umgengni Árna Johnsen við sannleikann, sem er alþekkt."

Þá sagði Steingrímur það „sorglegt að sitja uppi á þingi með eintök eins og Þór Saari."

Á heimasíðu Alþingis má hlusta á umræðurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×