Við erum feit, á þunglyndislyfjum, með klamydíu og skemmdar tennur Sólveig Bergmann skrifar 27. september 2010 18:56
Íslenska þjóðin er sú hamingjusamasta í heimi. Feit, á þunglyndislyfjum, með klamydíu og skemmdar tennur. Þetta sýna niðurstöður nýlegra kannana. Íslenskir karlar eru þeir sterkustu í heimi, konurnar þær fegurstu og spilling eitthvað sem enginn kannast við. Þessi mynd virðist eitthvað hafa breyst síðustu ár. Til dæmis bárust okkur þær fregnir í vikunni, í nýrri skýrslu OECD, að sextíu prósent Íslendinga eru yfir kjörþyngd. Tuttugu prósent eru offitusjúklingar. Það þýðir að Íslendingar eru í sjöunda sæti af 33 feitustu þjóðum heims. Frændur okkar á Norðurlöndum eru langt undir meðatali. Ef við höldum okkur í norræna samanburðinum þá eru íslensk börn og ungmenni að meðaltali með tvöfalt fleiri skemmdar tennur en samanburðarhópar í Svíþjóð og staðan er verri hér en á hinum Norðurlöndunum. Meðal Jóninn eða Gunnan innbyrðir um kíló af sykri í hverri einustu viku. Finnar, Danir, Svíar og Norðmenn eru eftirbátar okkar á fleiri sviðum. Tíðni klamydíu er til dæmis hærri meðal Íslendinga en þekkist meðal frændþjóðanna. Svo eru það heimsmetin. Matvælaverð á Íslandi er það hæsta í heimi og fjöldi sortuæxla meðal íslenskra kvenna slær allt annað út sem sést hefur á heimsvísu. Íslendingar slá líka öll met í notkun á þunglyndislyfjum og má velta því fyrir sér hvort tenging sé á milli þeirrar notkunar og því að Íslendingar eru jákvæðasta þjóð í heimi samkvæmt mælingum OECD. Þá má geta þess að ævilíkur á Íslandi eru um það bil tveimur árum meiri en í öðrum OECD ríkjum.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Sjá meira