Innlent

Öryrkjar mótmæla kjaraskerðingu vegna verðtryggðra lána

Öryrkjabandalag Íslands hélt aðalstjórnarfund í kvöld og samþykkt þar ályktun þar sem kjaraskerðingu öryrkja er meðal annars mótmælt. ályktun er eftirfarandi:

Öryrkjabandalag Íslands mótmælir þeim kjaraskerðingum sem felast í því að aftengja lög er tryggja hækkun lífeyris miðað við vísitölu en halda verðtryggingu lána, sem hefur hækkað húsnæðiskostnað upp úr öllu valdi.

Öryrkjabandalag Íslands mótmælir þeirri breytingu á lögum er gera Úrskurðarnefnd almannatrygginga kleift að beita aðfararhæfi gegn þeim er Tryggingastofnun ríkisins telur sig hafa ofgreitt. Með þessu getur ÚRAL gengið að eignum fólks án dómsúrskurðar, sem þarf við almennar skuldir. Lífeyrisþegar eru þannig orðnir annars flokks borgarar.

Öryrkjabandalag Íslands mótmælir þeirri áráttu stjórnvalda að byrja ávallt á lífeyrisþegum þegar þarf að draga saman seglin. Með því að skerða lífeyri fólks og auka kostnaðarþátttöku þess í heilbrigðiskerfinu verða einstaklingarnir veikari fyrir og þurfa á dýrari úrræðum að halda síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×