Breytingar verði gerðar af virðingu 6. febrúar 2010 06:00 Nýtt hlutverk á Barónsstíg? Eigandi gömlu Heilsuverndarstöðvarinnar vill leigja hana til Icelandair Hotels. Samsett mynd/Fréttablaðið „
Það er mikilvægt, ef af verður, að breytingarnar verði framkvæmdar af virðingu við þetta merka hús,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, um ósk eiganda Heilsuverndarstöðvarinnar á Barónsstíg að innrétta húsið sem hótel. Júlíus bendir á að um sé að ræða atvinnuhúsnæði í einkaeigu. „Þeir sem vilja reka hótel í atvinnuhúsnæði hafa rétt til þess og geta byggt umsókn um slíkt á þeim forsendum. Það er hálf sorglegt að svona flott hús sem er ákveðið kennileiti hér í Reykjavík skuli ekki vera í notkun,“ segir hann. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær kveðst eigandi hússins, Álftavatn ehf., árangurslaust hafa reynt að koma því í notkun sem læknamiðstöð og sjúkrahótel. „Auðvitað hefði maður helst viljað sjá þetta hús í þeirri notkun sem það var byggt fyrir – í þágu heilbrigðisgæslu,“ segir Júlíus. Skipulagsráð hefur ekki tekið afstöðu til málsins. Álftvatn ehf. leggur áherslu á að vinnslu málsins sé hraðað svo að Icelandair Hotels geti hafið þar rekstur strax í vor en Júlíus segir margt ógert. Við blasi að gera þurfi miklar breytingar á innviðum hússins. „Ég reikna með að húsafriðunarnefnd og fleiri fagaðailar hafi áhuga á að fylgjast vel með þessu máli. Þá verður að hafa í huga hvaða áhrif breytt notkun geti haft á nærumhverfið,“ segir formaður skipulagsráðs. - gar
Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Erlent Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Innlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Fleiri fréttir Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður Sjá meira