Innlent

Víða brotist inn í sumarbústaði

Mynd/ Pjetur.
Mynd/ Pjetur.
Innbrotsþjófar gerðu tilraun til að stela hitalömpum úr gróðurhúsi í Reykhóltshverfi í Árnessýslu undir morgun. Eigandi gróðurstöðvarinnar var snemma á fótum og kom styggð að þjófunum, þegar þeir sáu til hans, og komust þeir undan.

Brotist hefur verið inn í átta sumarbústaði í uppsveitum Árnessýslu undanfarna daga og þaðan stollið flatskjám og ýmsu öðru. Í einu tilvikinu virðist sem kona með barn hafi hafist við í bústað í einhvern tíma, án vitundar eða samþykkis eigendanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×