Undrast færri ferðir fyrir sama verð 18. janúar 2010 06:00 Framkvæmdastjóri Spalar segir að tekið sé fram í áskriftarsamningi að gjaldið getur hækkað og lækkað eftir aðstæðum. fréttablaðið/pjetur
Veggjald í Hvalfjarðargöngunum hækkar um tæplega 13 prósent að jafnaði frá og með 1. febrúar vegna verðlagsþróunar og afkomu Spalar undanfarin tvö ár. Gjald fyrir staka ferð í fyrsta gjaldflokki fer úr 800 í 900 krónur og hver ferð áskrifenda að eitt hundrað ferðum fer úr 230 í 259 krónur. Inneign áskrifenda minnkar sjálfkrafa við gjaldskrárbreytinguna, það er ónotuðum ferðum fækkar sem svarar til hækkunar veggjaldsins. Aðspurður efast Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, um að þessi ákvörðun varðandi áskriftina standist. „Það þarf alltaf samþykki neytenda fyrir breytingum að skilmálum eða kjörum nema í einstaka undantekningartilvikum,“ segir Gísli. „Þá er hægt að tilkynna og gefa frest vilji menn draga sig út úr viðskiptunum. Til dæmis ef símafyrirtæki hækka verðskrána hefur maður þrjátíu daga til að skipta um fyrirtæki eða áskrift. Annars er maður bundinn,“ segir hann. „Ef einokunarfyrirtæki ætla að hækka verð þá gildir ekki þetta sjónarmið sem almennt gildir um frjálsa verðlagningu. Þess vegna þyrfti óháður aðili, til dæmis ráðherra, að meta hvort það séu forsendur til hækkunar.“ Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að tekið sé fram í skilmálum í 2. grein áskriftasamnings að Spölur heimili viðkomandi að hafa afnot af göngunum á því gjaldi sem er í gildi hverju sinni. „Þetta hefur einu sinni hækkað á níu árum en síðan hefur gjaldið lækkað fimm sinnum. Einu sinni lækkaði það um tæp 40 prósent fyrir þessa algengustu bíla og þá fengu menn 40 til 50 ferðum meira en menn voru búnir að kaupa. Það kvartaði enginn þá,“ segir Gylfi. Hann bætir við að fólk geti sagt upp áskriftarsamningi sínum með stuttum fyrirvara ef það vill. „Það getur skilað inn lyklinum og fengið endurgreitt, það er ekkert sem bannar það.“ - fb
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira