Sérstakt félag stofnað til að reka hallalaust bílastæðahús 16. mars 2010 04:00 Fjögurra milljóna stæði Stofnkostnaður við hvert bílastæði í bílastæðahúsi í miðborginni er nærri fjórum milljónum króna. 545 ný stæði verða í bílastæðahúsi Hörpunnar, nýja tónlistar- og ráðstefnuhússins. Fréttablaðið/Anton Brink
Bílastæðasjóður Reykjavíkur mun leggja um 400 milljónir króna til félags, sem stofnað verður um bílastæðahús Hörpu, nýja tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn. Síðastliðið sumar var stofnkostnaður við bílakjallara Hörpu með 545 stæðum áætlaður 2,6 milljarðar króna eða rúmar 4,7 milljónir á hvert stæði. Borgin mun eignast 105 af þeim stæðum, segir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs. Taka á húsið í notkun á næsta ári. Upphaflega áttu að vera 1.600 stæði í húsinu en það breyttist í kjölfar hrunsins. Hlutafélag verður myndað um rekstur bílastæðahússins. Rekstrinum verður ætlað að standa undir sér, segir Kolbrún. Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Portusar, eignarhaldsfélags Hörpu, segir að auk Bílastæðasjóðs muni félög tengd Portusi, eiga hlut í félaginu. Eignarhlutföll hafa ekki verið endanlega ákveðin. Kolbrún staðfesti að miðað við 400 milljóna framlag borgarinnar og 10 prósenta ávöxtunarkröfu þyrftu um 400.000 króna tekjur að koma fyrir hvert stæði á ári til að reksturinn standi undir sér, eða um 33.000 krónur á mánuði. Mánaðarkort í þau sjö bílastæðahús, sem nú eru í eigu borgarinnar, kosta frá 4.000 upp í 9.600 krónur. Höskuldur Ásgeirsson vildi ekki veita upplýsingar um rekstraráætlanir. Hann segir að ýmsir tekjumöguleikar aðrir en stæðagjöld verði nýttir. Til dæmis verði seldar auglýsingar á veggi bílastæðahússins og ýmis önnur hliðarþjónusta veitt. - pg
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Fleiri fréttir Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sjá meira