Innlent

Þrír karlmenn ákærðir fyrir stórfellda kannabisræktun

Um fimm hundruð plöntur voru í húsnæðinu í Þykkvabæ.
Um fimm hundruð plöntur voru í húsnæðinu í Þykkvabæ.

 Lögreglustjórinn á Selfossi hefur ákært þrjá karlmenn á þrítugsaldri fyrir stórfellda kannabisræktun í Þykkvabæ. Það var 23. mars sem lögreglan fann verksmiðjuna í útihúsi við Bala í Þykkvabæ. Þar höfðu mennirnir sett upp mjög stóra ræktunaraðstöðu og starfrækt í rúmlega hálft ár. Tveimur dögum síðar voru ræktendurnir handteknir. Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglu áður.

Ræktunin var vel falin í húsnæðinu en það hafði verið undir smásjánni hjá lögreglunni á Hvolsvelli og rannsóknardeildinni á Selfossi um nokkurt skeið. Þar reyndust vera tæplega fimm hundruð kannabisplöntur, sem vógu rúmlega 68 kíló. Þá fundust tæplega þrjú kíló af kannabislaufum og tæp ellefu grömm af hassi.

Allur tiltækur búnaður til ræktunar var á staðnum, hitalampar og sjálfvirkt vökvunarkerfi.

Mennirnir sem ákærðir hafa verið koma allir af höfuðborgarsvæðinu. -jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×