Innlent

Fengu ekki nægan vind í reynsluflugið

Boeing 787 Dreamliner á Keflavíkurflugvelli. Gangi áætlanir eftir verður þessi þota afhent japanska flugfélaginu Air Nippon Airlines (ANA) á fyrri hluta næsta árs. Flugprófanir þotunnar sem Boeing segir byltingarkennda standa yfir þannig að færa megi sönnur á flughæfni hennar. Fréttablaðið/ÓKÁ
Boeing 787 Dreamliner á Keflavíkurflugvelli. Gangi áætlanir eftir verður þessi þota afhent japanska flugfélaginu Air Nippon Airlines (ANA) á fyrri hluta næsta árs. Flugprófanir þotunnar sem Boeing segir byltingarkennda standa yfir þannig að færa megi sönnur á flughæfni hennar. Fréttablaðið/ÓKÁ

Byltingarkennd ný þota, Boeing 787 Dreamliner, er í fyrsta sinn í reynsluflugi utan Bandaríkjanna. Meðal þess sem prófað er á Keflavíkurflugvelli er flugtak og lending í hliðarvindi. Afhenda á fyrstu vélarnar á fyrsta fjórðungi næsta árs.

„Það er stórkostleg upplifun að fá að fljúga svona vél og taka þátt í prófunum á henni,“ segir Randy Neville, tilraunaflugmaður Boeing. Hann var fyrstur til að fljúga nýrri þotu félagsins, Boeing 787 Dreamliner, um miðjan desember síðastliðinn. Hann er nú staddur hér á landi í fyrstu prófunum á flugvélinni sem fram fara utan Bandaríkjanna.

„Á Keflavíkurflugvelli eru kjöraðstæður til þess að prófa vélina í hliðarvindi,“ segir hann, en snemma í gærmorgun voru meðal annars framkvæmdar lendingar í sterkum hliðarvindi, bæði með sjálfvirkum búnaði og þar sem flugmaður var við stjórnvölinn. Eftir hádegi þegar sýna átti fjölmiðlum flugið hafði vind lægt og ekkert var flogið.

Neville er hér kunnugur staðháttum. Hann hefur reynsluflogið vélum Boeing hér áður og var svo undir lok áttunda áratugarins í flugher Bandaríkjanna um árs skeið á Keflavíkurflugvelli.

Boeing Dreamliner er sögð marka tímamót í flugsögunni í því að líkjast meira geimskutlu í hönnun en hefðbundinni þotu. Hún er þó ekki mjög frábrugðin öðrum flugvélum að sjá, utan að gluggar eru stærri og vængir heldur lengri. Vélin á að verða öll hin nútímalegasta, með rafstýrðri skyggingu á gluggum og loftþrýstingi sem er nær því sem gerist á jörðu niðri. Flugþreyta á því að heyra sögunni til með tilkomu þessara véla.

Fimm svona flugvélar eru í reynsluflugi um þessar mundir. Í tilkynningu Boeing kemur fram að vél númer tvö sé við prófanir á háflugi og flugi í ofsakulda í Keflavík. Randy Neville upplýsti á kynningarfundi félagsins í gær að í fyrradag hefðo verið lagt upp héðan og hringsólað í þrjá tíma yfir Norðurpólnum.

Fram kom á kynningunni í gær að prófanafloti Dreamliner-þotnanna hafi nú lokið nærri 17 hundruð flugtímum af þeim nærri þrjú þúsund sem ætlaðir eru í tilraunaflug. „Við gerum ráð fyrir því að afhenda fyrstu vélarnar viðskiptavinum á fyrsta ársfjórðungi 2011,“ segir Jeff Goehard, sérfræðingur prófana í teymi Dreamliner hjá Boeing.

olikr@frettabladid.is

Í flugstjórnarklefanum Rich Thomas, tæknimaður hjá Boeing, í flugmannssæti Boeing 787-þotunnar sem nú er í reynsluflugi á Keflavíkurflugvelli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×