Átti að fá ESB, en fékk Icesave 4. september 2010 19:44
Svavar Gestsson var næstum því orðinn aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðum um Evrópusambandið, en leiddi í staðinn fyrstu lotu Icesave-viðræðnanna. Jón Baldvin Hannibalsson gagnrýnir sitjandi ríkisstjórn fyrir að hafa tekist óhönduglega til í Icesave-málinu. Aðildarfélög Samfylkingarinnar funduðu í dag undir yfirskriftinni Naflaskoðunin í Samfylkingunni, en frummælandi var Jón Baldvin Hannibalsson. Jón fór vítt yfir sviðið og ræddi meðal annars um Icesave málið, sem hann segir alfarið á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins og stakk upp á að reikningurinn yrði sendur í Valhöll. Hann beindi þó einnig sjónum sínum að viðbrögðum þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr. "Ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms hefur reynt að fara samningaleið í þessu máli í framhaldi af því sem fyrri ríkisstjórn var búin að skuldbinda sig til, en tekist alveg með endemum óhönduglega," segir Jón Baldvin. "Hvaðan úr veröldinni kom Steingrími J. Sigfússyni, þeim ágæta manni, það í hug að setja Svavar Gestsson yfir þessa nefnd? Það er engin skýring til á því nema að hann hafi átt að gæta að órólegu deildinni hjá VG, Kattadeildinni - sem hann auðvitað gat ekki. Þetta voru skelfileg mistök. Auðvitað áttum við að leita strax eftir erlendum fjármálasérfræðingi til að leiða þessa nefnd. Auðvitað áttum við að virkja lögspekinga frá íhaldinu, strax, með sínar lögskýringar. Þetta voru mistök sem draga langan dilk á eftir sér." Kristrún Heimisdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, tók til máls á fundinum næst á eftir Jóni, og tjáði sig um aðkomu Svavars að málinu. "Ég held að ástæðan fyrir því að Svavar Gestsson var formaður samninganefndar um Icesave málið sé sú að þeir sem sömdu stjórnarsáttmálann fyrir okkur í vinstri stjórninni í ársbyrjun 2009 voru nánast búnir að samþykkja að hann yrði aðalsamningamaður um Evrópusambandið," sagði Kristrún í máli sínu. "Í staðinn þá varð hann samningamaður í Icesave málinu. Og það er vegna þess að menn eru svo óskaplega mikið að gefa eftir stöðuna um þessa grundvallarhagsmuni, eins og menn hafa gert í Icesave málinu og ESB-málinu - þeir víkja og við náum ekki þeim árangri sem við ættum að ná."
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Sjá meira