Innlent

Forgangsatriði að koma börnum í öruggt skjól

Mynd/AP
Forgangsatriði Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, er að ná til barna á Haítí og tryggja þeim fæðu, heilsugæslu, öruggt skjól og umönnun. UNICEF og samstarfsaðilar vinna hörðum höndum að því að tryggja að fyrir vikulok njóti öll börn undir fimm ára aldri sem hafa misst eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar umönnunar og næringar í öruggu umhverfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi.

Þar kemur fram að börn sem hafa orðið viðskila við ættingja sína eru skráð og reynt er að sameina þau fjölskyldum sínum eða öðrum nákomnum sem þau þekkja og treysta. Hættan á mansali og annarri misnotkun á börnum á hamfarasvæðinu er raunveruleg og alvarleg að mati Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að fimm flugfarmar af hjálpargögnum frá Barnahjálp S.þ. hafi borist til Haítí síðan að jarðskjálftinn reið yfir í síðustu viku. Ásamt þeim hafa neyðarbirgðir UNICEF sem fyrir voru á Haítí verið nýttar. Fimm vélar til viðbótar koma til landsins á næstu dögum með lífsnauðsynlegar vörur svo sem tjöld og skýli, drykkjarvatn, heilsu- og hreinlætisbúnað og matvæli.

Barnahjálp S.þ. dreifir nú drykkjarvatni til um 150 þúsund manna en til stendur að auka dreifingu verulega á næstunni.

Fjórar milljónir safnast á Íslandi

Síðan söfnun UNICEF á Íslandi fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí hófst þann 14. janúar hafa um fjórar milljónir íslenskra króna safnast.

Leggja má söfnuninni lið á vefsíðunni www.unicef.is, eða með því að hringja í 908-1000 fyrir 1.000 kr. framlag, 908-3000 fyrir 3.000 kr. framlag, eða 908-5000 fyrir 5.000 kr. framlag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×