Lömuð kona slasaðist vegna kæruleysis bílstjóra 4. október 2010 03:00 Einar Magnús Magnússon
Slys við flutning á fatlaðri konu hefur orðið til þess að Umferðarstofa vill endurskoða reglur um ábyrgð ökumanna. Konan, sem er mikið fötluð, slasaðist þegar verið var að flytja hana á milli staða í bíl í mars síðastliðnum. Hjólastóll konunnar var festur í bílinn en konan ekki í stólinn. Hún féll úr stólnum þegar bílstjórinn ók út á afrein. Konan er lömuð og gat því ekki tryggt sig þegar bíllinn beygði. Málið er komið til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að reglur um öryggisbúnað hafi ekki verið brotnar en ákvörðun um framhald málsins hefur ekki verið tekin. Einar Magnús Magnússson hjá Umferðarstofu segir málið alvarlegt. Hann hafi haft spurnir af þessu máli og til séu fleiri dæmi um sambærileg slys. Slæmt sé ef bílstjórar átti sig ekki á þeim öryggisbúnaði sem er nauðsynlegur til þess að flytja fatlaða á milli staða. „Það eru ákveðnir bílar sem eru til þess gerðir að flytja fatlaða og þá á ekki að flytja í öðrum bílum,“ segir Einar sem bendir á að gríðarlega mikilvægt sé að notaður sé réttur búnaður. Einar segir mjög mikilvægt að bæði þeir sem reka akstursþjónustu fatlaðra og starfsmenn skoðunarstöðva séu vel á verði og farið sé eftir þeim reglum sem fram koma í reglugerð um gerð og búnað ökutækja. Samkvæmt núgildandi lögum bera ökumenn ábyrgð á því að farþegar yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað. Einar telur hins vegar nauðsynlegt að skoða hvort ekki þurfi að auka þessa ábyrgð enn frekar þannig að áður en lagt er af stað beri ökumenn jafnframt ábyrgð á því að fatlaðir farþegar á öllum aldri noti réttan öryggisbúnað í þeim tilfellum þar sem þeir geti ekki sjálfir axlað þá ábyrgð einir og óstuddir. - sbt
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira