Orkuskipti í umferðinni Óli Kristján Ármannsson skrifar 26. janúar 2010 05:30 Veifað úr vetnisrafbíl Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fékk að prufukeyra Ford Focus vetnisrafbíl sem Skeljungur tekur í notkun eftir að hafa afhent átta fyrirtækjum slíka bíla hjá Brimborg í gær. Fréttablaðið/GVA
Nýjum Ford Focus FCV vetnisrafbílum Brimborgar og Íslenskrar Nýorku var í gær útdeilt til fyrirtækja sem taka þátt í að safna upplýsingum um eiginleika slíkra bíla í daglegri notkun við krefjandi aðstæður. Við afhendingu bílanna benti Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, á að hér á landi væri nú stærsti floti vetnisrafbíla í Evrópu, eða 22 bílar. „Næsta skref krefst þess að byggt verði upp dreifingarkerfi fyrir vetni,“ sagði hann og kvaðst gera ráð fyrir að hafin verði fjöldaframleiðsla bíla, á borð við þá sem nú eru hér í prófun, innan fimm ára. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku, kvaðst jafnframt sannfærður um ágæti vetnisrafbíla, sér í lagi við íslenskar aðstæður, í samanburði við aðra rafbíla. Þar skipti máli að ekki taki nema þrjár til fjórar mínútur að fylla á bílinn, meðan rafbílar þurfi jafnvel að vera í hleðslu í átta klukkustundir. Þá sé drægi nýjustu vetnisrafbíla mun meira en rafbíla. Jón Björn segir áfram unnið að vetnistilraunum og rannsóknum hér og vísaði meðal annars til þess að félagið hafi nýverið fengið 46 milljónir króna í styrk frá Evrópusambandinu í tengslum við nýtt rannsóknarverkefni. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir áfram unnið að orkuskiptaáætlun hér á landi. „Við eigum bara eftir að gera byltingu á sviði samgangna og verðum þá 100 prósent endurnýtanleg,“ sagði hún. Um leið áréttaði hún að það væri ekki hlutverk hins opinbera að velja tæknina, heldur ráði markaðurinn og tækninýjungar för. Þá þurfi að verða til þekkingarklasi þar sem einkafyrirtæki starfi með hinu opinbera við að búa í haginn fyrir það sem koma skal. „Hér verður vonandi orkuskiptabylting á næstu örfáu árum. Við höfum gert þetta áður,“ sagði hún og vísaði til þess þegar olíukyndingu hér á landi var nær alveg skipt út fyrir hitaveitu. Katrín afhenti bílana, en fyrirtækin sem taka þátt í verkefninu eru Brimborg, Íslensk Nýorka, Ísafold Travel, Keilir, Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun, Icelandic Hydrogen, Elding hvalaskoðun, Nýsköpunarmiðstöð og Skeljungur.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira